Nokia Speakerphone HF 310 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Áður en rafhlaðan er hlaðin skal kynna sér vel „Upplýsingar um rafhlöðu
og hleðslutæki“ á bls. 16.

Viðvörun: Aðeins skal nota hleðslutæki sem Nokia hefur samþykkt til
notkunar með þessari tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti
öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.

Þegar aukabúnaður er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

1. Tengdu snúru hleðslutækisins við tengið.

2. Stingdu hleðslutækinu í samband við aflgjafann. Stingdu t.d. DC-4

hleðslutækinu í samband við kveikjarainnstunguna í bílnum eða
AC-5 hleðslutækinu í innstungu á vegg. Rauða stöðuljósið logar við

1

2

3

4

7

6

5

background image

T æ k i ð t e k i ð í n o t k u n

7

hleðslu. Það gæti tekið allt að 2 klukkutíma og 10 mínútur að hlaða
rafhlöðuna til fulls.

Ef notað er hleðslutæki sem stungið er í samband við
kveikjarainnstungu verður aflið að vera frá 12 volta rafgeymi
í bílnum. Gættu þess að hleðslutækið sé örugglega í sambandi
við kveikjarainnstunguna og trufli ekki bílstjórann.

Í sumum bíltegundum er kveikjarainnstungan í sambandi við
rafgeymi bílsins jafnvel þótt bíllykillinn sé fjarlægður. Í þeim tilvikum
gæti rafgeymir bílsins tæmst þótt hljóðbúnaðurinn sé ekki í notkun.
Bílaframleiðandinn gefur nánari upplýsingar.

3. Þegar rafhlaðan er fullhlaðin pípir hljóðbúnaðurinn. Hleðslutækið

er fyrst tekið úr sambandi við hljóðbúnaðinn og síðan aflgjafann.

Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að 30 klukkustundir í tali eða allt að
40 daga í biðstöðu.

Þegar rafhlaðan er að tæmast blikkar rauða stöðuljósið hægt og
hljóðbúnaðurinn pípir á fimm mínútna fresti. Þá skal hlaða rafhlöðuna.